annzapannza
myndir
29.07.2008 01:02:08 / annza

ÚFF... erfitt að blogga núna sko.

:$Hæ allir, alltaf ætla ég að vera svo dugleg að blogga,en svo bara gerist ekkert.:$
Svo er svo erfitt að blogga því að það hefur svo mikið gerst á þessum tíma.
Við erum byrjuð á húsinu semsagt búin að grafa og fylla uppí með grús og slétta(reyndar gerði pabbi þetta allt) en Ellert reynir að vera duglegur þegar hann fær frí,þannig að pabbi er ekki alveg einn.
Nú er allt orðið klárt svo að við gætum byrjað á þessu en húsið hefur hækkað um ca 3milljónir í þessari kreppu svo að við ætlum að bíða aðeins,erum reyndar farin að hugsa um að klára bílskúrinn og flytja inn í hann svona til að byrjameð ,gæti orðið 2ár í bílskúr vonum bara að þau líði mjög hratt;) (hann er reyndar mjög stór)
Svo er ég að fara að byrja í skóla í haust,og ég er alveg orðin næstumþví stressuð,það er svo langt síðan síðast ég kann ekkert að læra,þetta er samt svo spennandi. 
Axel er í danmörku með ömmu sinni og Agústu að heimsækja Óskar,Magneu og Veigar.
Hann er búinn að vera þar síðan 3.júlí og ég veit ekkert hvenar hann kemur:(vonandi sem fyrst,ég er löngu farin að bíða þetta er alltof langur tími.
Og Sólon Breki er orðinn stór hann er hættur að hafa bleiju mjög duglegur að muna að fara alltaf á koppinn,ég þurfti nú samt að þurka nokkra pissupolla af gólfinu fyrstu tvo dagana en svo var þetta bara ekkert mál:þ
Elín Kristín reinir að herma en hún er bara lítil og vitlaus sest bara á koppinn og klappar,henni finnst hún sko alveg jafn dugleg og stóribróðir:lol:
Ég læt þetta duga í bili en ef að ykkur langar í bíltúr í sveitina þá er alltaf heitt á könnunni.

» 1 hafa sagt sína skoðun

09.04.2008 16:15:02 / annza

Erum flutt.

Já nú erum við flutt í sveitina  með hesta, hund og kött úti á túni:lol:
Axel fer með skólabíl í skólann á hverjum morgni og finnst það bara soldið gaman.
Sólon Breki er hættur að vakna á næturnar og Elín Kristín líka og hætt að vera svona mikið veik.
þannig að það var greinilega rétt hjá okkur að .það var eithvað að í hinu húsinu.

En allavega þá ætlaði ég bara aðeins að láta vita af okkur,við erum ekki enn komin með netið svo að það verður ekki mikið bloggað á næstunni.
Reyndar er þráðlaust net á N1. á Hvolsvelli kanski maður hangi bara á netinu þar:$

» 1 hafa sagt sína skoðun

20.03.2008 00:25:51 / annza

Við erum að flytja.

Jæja það er búið að reka okkur út , já nema við borgum 220.000kr næstu mánaðarmót og 110.000kr á mánuði eftir það.En það kemur ekki til greina.
Náðum svo að finna annað hús sem er reyndar ekki á Hvolsvelli það er soldið langt uppí sveit ,(talandi um sveitalubba).
En við erum nú bara sátt við þetta alltsaman.
Elín Kristín fór til læknis í dag og er en einusinni komin með sýkingu í eyrað, vonandi lagast þetta eithvað þegar við flytjum úr þessu mygluhreiðri.
Svo nú ætla ég bara að byrja að pakka.










 













» 2 hafa sagt sína skoðun

13.03.2008 22:16:36 / annza

Fyrsti kossinn.

Þau eru bara flottust ....


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.03.2008 21:12:35 / annza

Sætust


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.03.2008 01:08:02 / annza

Heilsufarsfréttir.

Jæja Elín var bara eina nótt á spítalanum og fékk einhverja sýklalyfjasprautur í bæði lærin, á morgun eigum vid svo að hringja í læknirinn til að fá að vita hvað kom útúr öllum þessum  blóðprufum, en hun varð strax miklu betri .
Svo á leiðinni heim í gærkvöldi var Sólon Breki orðinn veikur og ældi þrisvar í bílnum, hann svaf reyndar alla nóttina en þá byrjaði Elín Kristín að æla og er enn ælandi og alveg ótrúlega mikið veik.
Axel er líka orðinn mjög slappur með hálsbólgu og hvef,svo að ég verð örugglega heima á morgun með alla sjúklingana mína.

» 2 hafa sagt sína skoðun

08.03.2008 02:50:35 / annza

Smá fréttir af Elínu.

Jæja nú er búið að leggja Elínu inn á barnaspítalann,  taka blóðprufu og taka sýni úr eyrum og nefi setja hana í lungnamyndatöku,svo er líklegast ofnæmispróf á morgun.
Við vitum ekki hvað hún þarf að vera lengi inni, en vonandi finnst fljótt hvað er að svo við getum farið heim og sofið á næturnar.
Ellert er hjá henni núna og ég ligg uppí rúmi hjá Áústu að horfa á The DaVinci code.
Soldið óþægilegt að hafa barnið sitt inni á spítala og vera ekki hjá því,
 en ég tek næstu spítalavakt.

» 0 hafa sagt sína skoðun

03.03.2008 22:51:13 / annza

Talandi um fjör ...

:$Við vorum send á bráðavakt barna í dag með Elínu , enda er hún núna búin að vera veik í 8.mánuði.og allann þennan tíma höfum við verið hlaupandi á milli lækna í þeirri von að einhver gæti fundið út hvað er að barninu. En allir sögðu að það væri ekkert að.
svo mætum við uppá heilsugæslustöð í ungbarnaeftirlitið og hún átti að fá sprautu,en hjúkkan vildi að læknirinn skoðaði hana fyrst.:$
þá kom í ljós að hún er með bullandi asma og einhverja síkingu í lungunum og eyrunum og mátti allsekki fá sprautu.
Svo að hún fékk pensilín stera töflur og asmapúst,tók þessi meðöl og skánaði aðeins en vesnaði svo strax aftur og fékk sama meðalaskamt aftur plús annað púst.
Hún skánaði ekkert þá og þessvegna fórum við á bráðavaktina í dag.
Þar hittum við barnalæknir sem fannst hún ekkert mikið veik en hún heldur áfram á sterunum og báðum pústunum og fékk nýja tegund af pensilíni og hann pantaði tíma hjá asmasérfræðing,en sá tími er eftir þrjár vikur , við bíðum bara róleg það er svosem ekki mikil viðbót við átta mánuði.
Mér finnst þetta alveg ótrúlegt að það þurfi að pína krakkann svona mikið, okkur langar líka að fá að sofa eina heila nótt það yrði hrikalega nice...

En þa að einhverju skemtinlegu ég kíkti á jólahlaðborð með vinnunni síðasta föstudag(29.febrúar)
já soldið spes tími fyrir jólahlaðborð en það var rosa gaman.
Maren kíkti til mín og við fengum okkur í glas á meðan við höfðum okkur til fyrir kvöldið.
 Það var svaka fjör og skemtinefndin var alveg að standa sig,og gáfu öllum pakka,ég fékk innrammaða skúringarmoppu , ein fékk gullfiska og ein málingu ...
þetta var allt soldið spes .
Næstu helgi er svo árshátíðin  , þarnæstu Laddi 6 tugur og fermingar og útlönd í apríl.

já það er nóg að gera  kem fljótlega með meira röfl .

» 1 hafa sagt sína skoðun

21.02.2008 22:56:50 / annza

Bara fjör í sveitinni

:p Jæja er ekki enn og aftur kominn tími á blogg ?
Brjálað að gera hjá öllum ég er byrjuð að vinna í Kjarval á daginn og er að klára hina vinnuna í Bláfell sem er eiginlega buið og skúra Kjarval á kvöldin.
Axel var að leika í leikriti í skólanum um daginn og stóð sig alveg frábærlega maður er alltaf jafn montinn með hann, enda er hann orðinn 10ára ótrúlega skrítið að hugsa um það, að það séu tíu ár síðan að hann fæddist sem þíðir að ég sé líka tíu árum eldri en þá:$:$ :$  (kelling)
Sólon Breki er alltaf jafn sætur og farinn að tala alveg ótrúlega mikið og er alltaf til í að hjálpa manni við allt.
Elín Kristín er líka rosa dugleg og er farin að labba tók 12 skref alveg sjálf 16.febrúar.
Hún er reyndar ennþá veik  og er búin að vera veik í marga mánuði , en við fórum til læknis í dag sem hefur ekki skoðað hana áður  og það lítur allt út fyrir að hann ætli að redda þessu.:lol: vonandi að það takist.


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.11.2007 13:46:45 / annza

Smá leiðrétting.

Hellú allir.

 Bara svo að þið vitið þá er ég ekki komin með viðhald,eg er að vinna til 17:00.smá innsláttar villa í síðasta bloggi.

Eg var að lesa bloggið hennar Jóku áðan,hún var að tala um að henni langi svo í diskinn með Palla,og ég bara verð að monta mig EG Á HANN. ÁRITAÐANN OG HANN ER GEÐVEIKUR.


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.11.2007 22:42:31 / annza

geisp...

Vá hvað maður getur verið þreittur eftir daginn er byrjuð að vinna og er ekki viss um að ég eigi eftir að meika þetta , er samt bara að vinna frá 10-12og 13-15 reyndar er extra mikið að gera núna sólon datt framúr rúminu sínu og viðbeinsbrotnaði svo að hann er mjög erfiður núna .Elín Kristín er alltaf með eyrnabólgu en hún fær rör í eyrun næsta fimtudag.:lol:

Núna eru Pabbi og Ágústa hjá okkur svo að Ágústa ætlar að passa Elínu á morgun svo að ég geti farið í vinnuna.

Axel er að fara að keppa í fótbolta á laugardaginn fyrsta mótið sitt með kfr get ekki beðið eftir að horfa á strákinn keppa:haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.11.2007 00:46:29 / annza

Ekki símalaus lengur.

Ellert keypti handa mér síma í gær , svo að það sé hægt að ná í kéllinguna.

Endilega allir að senda mér sms með nafni og símanúmeri því að eg man engin númer.

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.11.2007 00:24:11 / annza

va,va,vú,va...it´s a very nice...

Hehe... undur og stórmerki .

já þetta er alveg ótrúlegt, var að vesenast í heimabankanum og er með allt á núlli skulda semsagt ekki krónu...Hann Elli (sykurpúðinn) minn sá til þess.ÓTRÚLEGA GÓÐ TILFINNING. Vildi bara deila þessu með ykkur .

Annars ætlaði ég alltaf að blogga um allar bæjar ferðirnar mínar og öll fylleríin en mér finnst það eiginlega of seint.

Teikningarnar komnar og við förum bráðum að byrja að byggja.

Eitt enn síminn minn er tíndur ,gleimdi ég honum nokkuð hjá þér???

Ef svo er hringdu þá í mig og láttu mig vita,verð að fá símann.

Ellert er samt bara mjög ánægður með þetta,símareikningurinn verður ekki eins hár næst.


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.11.2007 00:16:21 / annza

Eg nenni ekki að blogga .

Eg nenni ekki að blogga strax.

Enn Ellert er búinn að blogga

www.blog.central.is/lerti


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.10.2007 00:53:27 / annza

171007 kl:00:35

Get ekki sofnað...

Fitumæling fljótlega , get ekki beðið eftir að sjá niðurstöðuna vonandi minni tölur en í byrjun.:lol:

Er að spá í að fara að prófa fleiri íþróttir veit bara ekki hvað.

Mig langar alveg ótrúlega í fótbolta, verst að það er ekki í boði

(get hvort eð er ekkert í fótbolta) en langar samt að reyna.

Svaka fjör um helgina hjá okkur, Elli var að vinna og ég skrapp í bæinn með krakkana.

Mamma hanns Ella passaði á föstudagskvöldið og ég kíkti í heimsókn til Jóku og Rafá.

Kíkti svo til Dóru við fengum okkur bjór og kíktum svo niðrí bæ , vá hvað eg er alltaf að sjá það betur og betur hvað þessi miðbæjarpakki á ekki við mig.

Við Dóra skemtum okkur nú samt vel þrátt fyrir geisp og smá vott af slagsmálum, hehe...

fengum meira að sega andlitsmálun


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3